„Það er vont að missa góðan liðsmann“ Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar, segir augljóst að ræða þurfi stöðuna innan Viðreisnar á fundi. Flokkurinn hafi fundað í haust en eftir brotthvarf tveggja þingmanna sé augljóst tilefni til að ræða saman. Innlent 17.11.2026 09:10
Ljóst að stundum vanti „landsbyggðargleraugun“ og vonast eftir stefnubreytingu Eftir að Ingvar Þóroddsson þingmaður hefur sagt sig úr Viðreisn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn á Viðreisn engan fulltrúa í Norðausturkjördæmi. Formaður norðausturráðs Viðreisnar segir ljóst að ríkisstjórnin hafi tekið ákvarðanir án „landsbyggðargleraugna“ og vonar að tíðindin marki ákveðna stefnubreytingu hjá flokknum. Innlent 16.11.2026 20:16
Vatnið finnur alltaf sinn farveg Af mörgum illa undirbúnum, órannsökuðum og ófyrirséðum skattahækkunum hlýtur Bláskógaskatturinn að vera ein furðulegustu áform ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur í gjaldtöku og nýjum sköttum. Rökin virðast bara vera, af því bara. Skoðun 16.11.2026 18:32
„Allt með kyrrum kjörum í Samfylkingunni“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, óskar Ingvari Þóroddssyni, sem skipti úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn, velfarnaðar í starfi. Enginn sé á leið úr Samfylkingunni. Innlent 16. nóvember 2026 14:46
„Ekki nema þú haldir að konur geti það ekki?“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir það vonbrigði að Ingvar Þóroddsson hafi sagt sig úr Viðreisn og snúið í Sjálfstæðisflokkinn. Hún gaf lítið fyrir orð hans um að Viðreisn hafi svikið kjósendur. Þá segist hún vel geta verið formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra á sama tíma. Innlent 16. nóvember 2026 14:04
Bein útsending: Ætla að koma skóla- og frístundastarfi í fremstu röð Reykjavíkurborg stendur í dag fyrir fundi í ráðhúsinu þar sem saman koma ýmsir hagsmunaaðilar menntamála til að ræða hvernig koma megi skóla- og frístundastarfi í borginni í fremstu röð. Vísir mun sýna beint frá ráðhúsinu og ræða við aðila sem sitja munu fundinn. Innlent 16. nóvember 2026 12:16
Hafi svikið loforð til kjósenda „Ég hef verið að íhuga málið mjög lengi eins og kemur fram í yfirlýsingu sem ég birti á Facebook-síðu minni áðan. Þetta snýst um grundvallarágreining á milli mín og ríkisstjórnarinnar sem Viðreisn er hluti af. Það var aðallega fjárlagafrumvarpið núna sem gerði útslagið.“ Innlent 16. nóvember 2026 12:12
Fagnar öflugum liðsauka Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Ingvar Þóroddsson, nýjan liðsmann þingflokksins, öflugan þingmann og að margt sem hann hafi staðið fyrir falli vel að sjálfstæðisstefnunni. Brotthvarfið hljóti að veikja stöðu ríkisstjórnarinnar. Innlent 16. nóvember 2026 11:52
Flokkarnir jafnstórir Ingvar Þóroddsson er þriðji þingmaðurinn til að yfirgefa ríkisstjórnarflokk á yfirstandandi kjörtímabili. Ólíkt hinum tveimur sem verja ríkisstjórnina utan þingflokks er Ingvar kominn til liðs við stjórnarandstöðuna. Sjálfstæðisflokkurinn er kominn með 15 þingmenn eins og Samfylkingin. Innlent 16. nóvember 2026 11:23
Vaktin: Stjórnarliðum fækkar enn og aftur Ingvar Þóroddsson hefur sagt sig úr þingflokki Viðreisnar og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann er þriðji þingmaðurinn sem yfirgefur þingflokka ríkisstjórnarflokkanna á þessu kjörtímabili. Innlent 16. nóvember 2026 11:23
Varaþingmaður og barnalæknir fundu ástina Diljá Ámundadóttir Zoëga, varaþingmaður Viðreisnar og guðfræðinemi, og Ólafur Heiðar Þorvaldsson barnalæknir eru nýtt par. Þau eru stödd saman í fríi í Lundúnum og hafa birt myndir af sér saman á samfélagsmiðlum. Lífið 16. nóvember 2026 11:15
Ingvar yfirgefur Viðreisn Ingvar Þóroddsson hefur ákveðið að venda kvæði sínu í kross og skipta úr Viðreisn yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Innlent 16. nóvember 2026 11:14
Sæl, Sigríður Undanfarin ár hafa íslensk stjórnvöld, fræðasamfélagið og fyrirtæki fjárfest verulega í máltækniinnviðum fyrir íslensku; svo sem talgreiningu, talgervingu, vélþýðingu og stórum málgagnasöfnum. Þessi vinna hefur þegar skilað árangri og flest stærstu tæknifyrirtæki heims, þar á meðal Microsoft, Google og þróunaraðilar helstu gervigreindarlíkana, styðja nú íslensku með einum eða öðrum hætti. Eftir situr tæknirisinn Apple, sem er með ríkjandi markaðshlutdeild á símamarkaði hérlendis. Skoðun 16. nóvember 2026 10:33
„Blanda inn einhverju kynlausu tungumáli“ Búið er að „blanda inn einhverju kynlausu tungumáli“ inn í íslenskuna segir menntamálaráðherra og fagnar því að geta talað „okkar íslensku“ á degi íslenskrar tungu. Innlent 16. nóvember 2026 09:21
Vændiskaupendur eiga ekki að njóta sérmeðferðar Í sérstakri aðgerð lögreglu í fyrra fundust 460 virkar vændisauglýsingar á einni vefsíðu hér á Íslandi. Í nýlegri umfjöllun Kveiks kom fram að hundruð kvenna væru auglýstar í vændi hér á landi. Skoðun 16. nóvember 2026 07:01
Yfir tvö hundruð milljónir í auglýsingar Innviðaráðuneytið og stofnanir þess hafa varið rúmum tvö hundruð milljónum króna í auglýsingar á síðustu fjórum árum. Stærstur hluti fjármagnsins fór til innlendra fjölmiðla. Innlent 15. nóvember 2026 23:32
Fimm milljarðar geti bæst við uppsafnaðan halla Rekstrarstaða heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni hefur sjaldan verið veikari samkvæmt minnisblaði sem forstjórar stofnana undirrita. Samanlagður halli geti nemið fimm milljörðum. Innlent 15. nóvember 2026 21:20
Notuðu andlit þingmanns í auglýsingu án leyfis Sigurði Helga Pálmasyni, þingmanni Flokks fólksins, brá í brún þegar hann sá erlenda auglýsingu á Facebook. Þar var búið að nota mynd af honum sjálfum og föður hans auk þess að henni var breytt með gervigreind. Innlent 15. nóvember 2026 17:56
Boðar aðgerðir gegn hraðakstri Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar aðgerðir til að stemma stigu við hraðakstri og efla umferðaröryggi. Meðal aðgerða verður að styrkja heimildir lögreglu til að bregðast við alvarlegum umferðarlagabrotum. Innlent 15. nóvember 2026 15:42
Ráðgjafi á BUGL kemur inn fyrir Jón Gnarr Gunnar Guðjónsson, varaþingmaður Viðreisnar, hefur frá því á mánudag gegnt þingmennsku í tímabundinni fjarveru Jóns Gnarr, sem sagði sig nýlega úr þingflokknum. Innlent 15. nóvember 2026 15:11
Tíu milljarða halli „Rekstrarstaða heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni hefur sjaldan verið veikari.“ Þannig hefst minnisblað sem forstjórar sex heilbrigðisstofnana sendu fjárlaganefnd Alþingis í vikunni. Skoðun 15. nóvember 2026 13:02
Nám á Íslandi verður sífellt fjarlægari kostur fyrir nemendur utan EES Dómsmálaráðuneytið hefur birt drög að reglugerð í Samráðsgátt. Í drögunum er lagt til að krafa um trygga framfærslu námsmanna utan EES/EFTA hækki um 45%, ú 259.951 kr í 375.890 kr. á mánuði. Skoðun 15. nóvember 2026 10:03
Eins og eineltisseggir á skólalóð Fyrrverandi þingmaður Pírata gagnrýnir að þingmaður Sjálfstæðisflokksins sé uppnefndur „pírati“ í málgagni þingflokks Samfylkingar. Nafnlaus pistlahöfundur Samfylkingar segir Sjálfstæðismanninn „setja sand í tannhjól Alþingis og tefja framgang mála“ með aðstoð gervigreindar. Innlent 14. nóvember 2026 15:55
Gervigreind Guðlaugs Þórs Undanfarið hafa fyrirspurnir Guðlaugs Þórs Þórðarsonar verið til umræðu. Fyrst tókust hann og Sigurjón Þórðarson á um þær. Svo birti Kratinn grein þar sem Guðlaugur er sakaður um að hafa látið gervigreind semja fyrir sig 320 spurningar um fjárlög. Fyrirsögnin er „Nýju Píratarnir sem vita ekkert hvert þeir eru að fara“. Skoðun 14. nóvember 2026 15:45