Fara í innihald

haust

Pending
Úr Wikiorðabók, frjálsu orðabókinni

Íslenska

Fallbeyging orðsins „haust“
Eintala Fleirtala
án greinis með greini án greinis með greini
Nefnifall haust haustið haust haustin
Þolfall haust haustið haust haustin
Þágufall hausti haustinu haustum haustunum
Eignarfall hausts haustsins hausta haustanna
Önnur orð með sömu fallbeygingu

Nafnorð haust (hvorugkyn); sterk beyging

[1] ein af árstíðunum fjórum. Á norðurhveli jarðar eru mánuðirnir september, október og nóvember almennt taldir til hausts, en á suðurhveli eru mánuðirnir mars, apríl og maí haustmánuðir.
Andheiti
[1] vor, sumar, vetur
Yfirheiti
[1] árstíð

Afleiddar merkingarvinsamlegast skiptu þessu út fyrir Snið:afleitt

[breyta]
[1] haustfiðrildi, haustkvöld, haustlag, haustlamb, haustlangur, haustnótt, haustnætur, haustselur, haustull, haustútsala, haustveður
[1] sumarhaust, vetrarhaust

Sjá einnig, samanber

[breyta]
veður
Dæmi
[1] Veðurstofa Íslands telur haust vera október og nóvember. Á haustin styttir dag mjög hratt og í kjölfarið kólnar og gróður sölnar.

Þýðingar

Tilvísanir „Haust“ er grein sem finna má á Wikipediu.
Icelandic Online Dictionary and Readings „haust “