1541
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1541 (MDXLI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Claus van der Marwitzen lét af störfum sem hirðstjóri. Christoffer Huitfeldt tók við.
- 2. júní – Christoffer Huitfeldt hirðstjóri, handtók Ögmund Pálsson biskup fyrir morðið á Diðrik af Minden.
- Siðaskiptin á Íslandi: Gissur Einarsson, nýr biskup, breiddi út hinn nýja sið.
- Fædd
- Dáin
- 13. júlí(?) – Ögmundur Pálsson, biskup í Skálholti.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 12. febrúar - Pedro de Valdivia stofnaði Santiago del Nuevo Extremo sem varð Santíagó, höfuðborg Síle.
- 28. mars - San Francisco de Quito, síðar Quito, höfuðborg Ekvador, var yfirlýst borg.
- 8. maí - Spænski landkönnuðurinn Hernando de Soto kom að Mississippi-fljóti sem hann nefndi Rio de Espiritu Santo.
- 23 maí - Þriðji og síðasti könnunarleiðangur Jacques Cartier til Kanada.
- 26. júní - Spænski landkönnuðurinn Francisco Pizarro var drepinn af fylgismönnum Diego de Almagro (sem drepinn var af Pizarro-bræðrum 3 árum áður)
- 13. september - Jóhann Kalvín sneri aftur til Genf og vann að kenningu sinni og endurbótum kirkjunnar.
- 28. september - Karl 5. keisari safnaði saman flota 500 skipa og 24.000 hermönnum til árásar á Ottómanveldið í Alsír. Síðar varð liðið frá að hverfa vegna hamfarastorms við Algeirsborg.
- 23. nóvember - Catherine Howard Englandsdrottning, var handtekin fyrir framhjáhald.
- Fysta þýðing á biblíunni yfir á sænsku.
Births
- Fædd
- Jógvan Heinason, lögmaður Færeyja (d. 1602)
- El Greco, spænskur listmálari, myndhöggvari og arkitekt. (d. 1614)
- Dáin
- 26. júní Francisco Pizarro, spænskur landkönnuður (f. 1478).