1526
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |


Árið 1526 (MDXXVI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Biskuparnir, Jón Arason og Ögmundur Pálsson, komu báðir með mjög fjölmennt lið til Alþingis og leit út fyrir um tíma að þeir myndu berjast þar.
- Samþykkt gerð á Alþingi um laun bartskera fyrir að lækna fólk af sárasótt.
- Hrafn Brandsson varð lögmaður norðan og vestan eftir að hann hafði með stuðningi Jóns Arasonar fengið Teiti Þorleifssyni vikið úr embætti.
- Hrafn Brandsson giftist Þórunni dóttur Jóns Arasonar.
- Árnakirkja í Skálholti, sem Árni Helgason biskup lét byggja, brann til grunna.
- Akureyri fyrst nefnd í heimildum. Þá var kona dæmd þar fyrir að hafa mök við mann án þess að vera gift honum.
- Fædd
- Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 14. janúar - Friðarsamningur gerður í Madrid milli Frans 1. Frakkakonungs og Karls 5. keisara. Frans afsalaði sér Búrgund.
- 6. febrúar - Súleiman mikli, soldán Ottómanveldisins, myndaði hernaðarbandalag með Frökkum.
- Mars - Fyrsta heila þýðing Nýja testamentisins á ensku var flutt til Englands frá prentstað í Worms í Þýskalandi.
- 21. apríl - Babúr varð keisari Mógúla og stofnaði Mógúlveldið á Indlandi þegar hann réðst inn í norðurhluta landsins og tók yfir Delí.
- 22. maí - Frans Frakkakonungur hafnaði friðarsamningnum í Madríd og myndaði Cognac-bandalagið gegn Karli keisara.
- 9. júní - Go-Nara varð Japanskeisari.
- 24. júlí - Spánverjar hertóku Mílanó.
- 25. júlí - Spánverjar sigldu fyrstu um vesturströnd Norður-Ameríku.
- 9. ágúst - Spánverjar komu með fyrstu afrísku þrælana til Norður-Ameríku í eini fyrstu evrópsku nýlendunni í heimsálfunni þar sem nú er Suður-Karólína.
- 15. ágúst - Nýja testamentið var gefið út á sænsku.
- 21. ágúst - Spænski landkönnuðurinn Alonso de Salazar sá fyrstur Evrópubúa Marshalleyjar.
- 24. ágúst - Søren Andersen Norby beið ósigur í sjóorrustu við danskar, sænskar og lýbskar flotadeildir undan strönd Blekinge.
- 29. ágúst - Bardaginn við Mohács: Tyrkneskur her undir stjórn Súleimans 1. soldáns vann sigur á ungverska hernum og Loðvík 2. Ungverjalandskonungur féll á undanhaldinu. Súleiman tók Buda herskildi.
- 19. september - Um 5.000 múslimar sem höfðu falið sig í fjalllendi á austur-Spáni voru drepnir af hermönnum rómverska ríkisins.
- Francisco Pizarro hélt í annan leiðangur sinn og náði að strönd Perú. Spánverjar komu fyrst til Inkaveldisins
- Byssusmiðurinn Mastro Bartolomeo Beretta stofnaði Beretta-byssuverksmiðjurnar, sem eru enn starfandi og eru eitt elsta fyrirtæki í heimi.
- Fædd
- 1. janúar - Heilagur Louis Bertrand, spænskur trúboði í Suður-Ameríku, verndardýrlingur Kólumbíu, (d. 1581).
- 1. nóvember - Katrín Jagiellonka Svíadrottning, kona Jóhanns 3. Svíakonungs (d. 1583).
- Dáin
- 19. janúar - Ísabella af Búrgund, Danadrottning, kona Kristjáns 2. (f. 1501).
- 4. ágúst - Juan Sebastián Elcano, baskneskur landkönnuður (f. 1486/1487).
- 29. ágúst - Loðvík 2., konungur Ungverjalands og Bæheims, féll í orrustu (f. 1506).