1516
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1516 (MDXVI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Vigfús Erlendsson gegndi í raun lögmannsembætti um allt landið því að Jón Sigmundsson, lögmaður norðan og vestan, hafði verið bannfærður.
- Kristín Gottskálksdóttir, dóttir Gottskálks biskups Nikulássonar, giftist Jóni Einarssyni sýslumanni á Geitaskarði.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Árni Sveinbjarnarson, ábóti í Viðeyjarklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 20. janúar - Juan Díaz de Solís sigldi fyrstur Evrópubúa upp Río de la Plata við nútíma Argentínu og Úrúgvæ.
- Mars - Karl frá Ghent kjörinn eftirmaður Ferdinands Spánarkonungs.
- 23. apríl - Reinheitsgebot, reglur um hreinleika bjórs, sett í Bæjaralandi.
- 8. maí - Í konungsríkinu Đại Việt, þar sem nú er Norður-Víetnam, var konungurinn Le Tuong Duc myrtur af lífvörðum sínum. Tólf ára frændi hans, Le Chieu Tong, var gerður að nýjum konungi af samsærismönnunum.
- 28. júlí - Selím 1. Tyrkjasoldán sagði Mamelúkum í Egyptalandi stríð á hendur og réðst inn í Sýrland.
- 13. ágúst - Frans 1. Frakkakonungur viðurkenndi yfirráð Karl 5. á Napólí og Karl viðurkenndi yfirráð Frans yfir Mílanó.
- 4. desember - Heilaga rómverska keisaradæmið og Frakkland sömdu um frið í Brussel.
- Desember - Bókin Utopia eftir Thomas More kom út í fyrsta sinn.
- Forveri bresku póstþjónustunnar Royal Mail, Master of the Posts var stofnuð.
- Lokið var að reisa Fuggerei í Ágsborg, elsta félagslega húsnæði heims.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 1. janúar - Margrét Leijonhufvud, drottning Svíþjóðar, kona Gústafs Vasa (d. 1551).
- 18. febrúar - María 1. Englandsdrottning (Blóð-María) (d. 1558).
- 2. mars - Konrad Gesner, svissneskur náttúrufræðingur og bókasafnsfræðingur (d. 1565).