1503
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1503 (MDIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Kai von Ahlefeldt varð hirðstjóri á Íslandi.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 20. janúar - Sevilla hlaut sérstök réttindi um að versla við nýja heiminn.
- 15. mars - Vasco da Gama og föruneyti hans voru fyrstu Evrópubúarnir til að koma auga á Seychelles-eyjar.
- 10. maí - Kristófer Kólumbus uppgötvaði Cayman-eyjar og nefndi þær Las Tortugas eftir sæskjaldbökum sem hann sá þar.
- 3. maí - Ítalíustríðin: Spánverjar náðu völdum yfir Napólí.
- 21. júní - Múrad, soldán í austur-Tyrklandi barðist við Safavídaveldið í orrustu og missti 10.000 menn.
- 25. júní - Kristófer Kólumbus og menn hans strönduðu á Jamaíka eftir að skip þeirra lentu í stormi og dvöldu þar á hálft ár.
- 30. júlí - Portúgalinn Estêvão da Gama kom auga á eyjuna Sankti Helenu.
- 22. september - Píus III var kjörinn páfi (krýndur 8. október).
- 1. október - Afonso de Albuquerque stofnaði fyrsta virki Portúgala (og Evrópubúa) á Indlandi.
- 1. nóvember - Júlíus II var kjörinn páfi.
- Spánverjinn Juan de Bermudez uppgötvaði Bermúda.
- Leonardo da Vinci byrjaði að mála Mónu Lísu.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 10. mars - Ferdinand 1. keisari hins heilaga rómverska ríkis.
- 12. ágúst - Kristján 3. konungur Danmerkur.
- dags. ókunn - Nostradamus, franskur læknir og spámaður.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 18. ágúst - Alexander VI páfi (Alexander Borgia, f. 1431).
- 18. október - Píus III páfi (f. 1439). Hann var páfi í 27 daga.
- 14. desember - Sten Sture eldri, ríkisstjóri Svíþjóðar.