Nýtt viðtæki yfir netið hefur verið sett upp á Sauðárkróki. Tækið er WEB-888 SDR viðtæki sem kemur í stað eldra KiwiSDR tækis. Viðtækin eru bæði er í eigu Georgs Kulp, TF3GZ.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A og undirbjó tækið fyrir uppsetningu og gerði nauðsynlegar stillingar en Kristján J. Gunnarsson, TF4WD sá um tengingar á staðnum í húsnæði á hans vegum heima á Sauðárkróki.
WEB-888 SDR þekur m.a. öll HF amatörböndin og geta allt að 12 notendur hlustað samtímis. Loftnet er LW og er hlustun mjög góð t.d. á 80 metra bandi.
Bestu þakkir til þeirra Georgs, Ara og Kristjáns fyrir verðmætt framlag. Um er ræða mikilvægt viðtæki fyrir radíóamatöra sem gera tilraunir á HF böndunum, auk hlustara og allra sem hafa áhuga á útbreiðslu radíóbylgna.
Næsta tölublað CQ TF, nr. 4/2026 kemur út sunnudaginn 4. október.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið, s.s. frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr. Félagsmönnum er boðið að auglýsa frítt í blaðinu notuð fjarskiptatæki og/eða búnað sem tilheyrir áhugamálinu.
Vegna framkominna óska, hefur verið ákveðið að framlengja skilafrest efnis til föstudagsins 25. september n.k.
CQ WW DX CONTEST, RTTY. Keppnin hefst laugardag 26. september kl. 00:00 og lýkur sunnudag 28. september kl. 24:00.
Keppnin fer fram á RTTY á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + raðnúmer. https://cqwwrtty.com/
YU DX CONTEST. Keppnin hefst laugardag 26. september kl. 12:00 og lýkur sunnudag 28. september kl. 11:59.
Keppnin fer fram á CW og SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RS(T) + raðnúmer. https://yudx.yu1srs.org.rs/
Námskeiðið ÍRA til amatörprófs hófst í Háskólanum í Reykjavík mánudaginn 14. september. Andrés Þórarinsson, TF1AM varaformaður félagsins setti námskeiðið.
Alls voru 32 þátttakendur skráðir. Þar af mættu 13 í kennslustofu, en 9 voru fjarstaddir vegna vinnu eða af öðrum ástæðum. Þá eru 4 með búsetu utan höfuðborgarsvæðisins og munu þeir nota upptökur frá eldri námskeiðum til að ná eðlilegri námsframvindu. Loks eru 4 N-leyfishafar skráðir sem munu mæta þegar líða tekur á námskeiðið til að fullnema sig í efni sem þeir telja sig vanta.
Eftir setningu tók Kristinn Andersen, TF3KX við og hóf kennsluna. Hann var einnig með kennslu í gær (þriðjudag). Kennsla verður síðan samkvæmt tímaplani og mun Njáll H. Hilmarsson, TF3NH annast kennslu í dag, miðvikudag. Námskeiðinu lýkur 27. október n.k.
Bestu óskir um gott gengi og þakkir til allra sem koma að verkefninu.
Stjórn ÍRA.
Andrés Þórarinsson TF1AM varaformaður ÍRA setti námskeiðið 14. september stundvíslega kl. 18:30. Ljósmynd: Georg Kulp TF3GZ.Nemendur sem voru mættir í fyrstu kennslustund þann 14. september ásamt fulltrúum ÍRA. Ljósmynd: Jón Svavarsson TF3JON.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2026-09-16 09:56:342026-09-16 10:04:34NÁMSKEIÐ TIL AMTÖRPRÓFS ER BYRJAÐ.
Markmið keppninnar er að efla virkni radíóamatöra á Norðurlöndunum með því að hvetja til amskipta þeirra á milli og annarra utan utan Norðurlandanna. Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt.
Næsta tölublað CQ TF, nr. 4/2026 kemur út sunnudaginn 4. október.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið, s.s. frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr. Félagsmönnum er boðið að auglýsa frítt í blaðinu notuð fjarskiptatæki og/eða búnað sem tilheyrir áhugamálinu.
Ath. að skilafrestur efnis er til sunnudags 20. september. Netfang: ira@ira.is
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2026-09-13 15:06:192026-09-13 15:10:32VIKA ER TIL STEFNU.
Reykjavíkurborg hefur reynst ÍRA vel í gegnum tíðina og hefur Borgin verið okkur innan handar samfleytt í 63 ár um húsnæði fyrir starfsemi félagsins og nú síðast í Skeljanesi í 24 ár.
Eftir skoðun eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir skömmu, telur Borgin ekki forsvaranlegt að leigja húsið í Skeljanesi út lengur og hefur sagt öllum leigjendum upp leigunni, einnig ÍRA.
Stjórn ÍRA hefur verið í sambandi við Reykjavíkurborg, fundað með embættismönnum og sent erindi, m.a. um að ÍRA geti lagfært ágalla sem fram koma í skýrslu Slökkviliðsins, ef það megi vera til að fresta brottflutningi.
Aðalatriðið er þetta: Það er fyrirsjáanlegt að ÍRA missi fljótlega á nýju ári aðstöðuna í Skeljanesi. Við getum verið þakklát Reykjavíkurborg fyrir að hafa stutt okkur svo vel og svo lengi. Það er hins vegar einlæg von okkar, að Borgin geti orðið okkur innan handar um útvegun nýs húsnæðis fyrir starfsemina því án húsnæðis, mun ÍRA eiga erfitt uppdráttar.
N-leyfishafar sem hafa í hyggju að uppfæra til G-leyfis eru sérstaklega hvattir til að nota tækifærið og skrá sig.
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
An aerial view of Reykjavík University. Reykjavik University is a international university located at the heart of Reykjavik, the capital of Iceland. Reykjavik University (RU) is Iceland’s largest private university.
VIÐTÆKI Á SAUÐÁRKRÓKI ENDURNÝJAÐ.
Nýtt viðtæki yfir netið hefur verið sett upp á Sauðárkróki. Tækið er WEB-888 SDR viðtæki sem kemur í stað eldra KiwiSDR tækis. Viðtækin eru bæði er í eigu Georgs Kulp, TF3GZ.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A og undirbjó tækið fyrir uppsetningu og gerði nauðsynlegar stillingar en Kristján J. Gunnarsson, TF4WD sá um tengingar á staðnum í húsnæði á hans vegum heima á Sauðárkróki.
WEB-888 SDR þekur m.a. öll HF amatörböndin og geta allt að 12 notendur hlustað samtímis. Loftnet er LW og er hlustun mjög góð t.d. á 80 metra bandi.
Bestu þakkir til þeirra Georgs, Ara og Kristjáns fyrir verðmætt framlag. Um er ræða mikilvægt viðtæki fyrir radíóamatöra sem gera tilraunir á HF böndunum, auk hlustara og allra sem hafa áhuga á útbreiðslu radíóbylgna.
Vefslóð á viðtækið á Sauðárkróki: http://krokur.utvarp.com/
Stjórn ÍRA.
SKILAFRESTUR FRAMLENGDUR.
Ágæti félagsmaður!
Næsta tölublað CQ TF, nr. 4/2026 kemur út sunnudaginn 4. október.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið, s.s. frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr. Félagsmönnum er boðið að auglýsa frítt í blaðinu notuð fjarskiptatæki og/eða búnað sem tilheyrir áhugamálinu.
Vegna framkominna óska, hefur verið ákveðið að framlengja skilafrest efnis til föstudagsins 25. september n.k.
Félagskveðjur og 73,
Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA
ritstjóri CQ TF
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 24. SEPTEMBER.
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fyrir félagsmenn og gesti fimmtudaginn 24. september frá kl. 20:00 til 22:00.
Fundarsalur, fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL stofa á 2. hæð verða opin.
QSL stjóri ÍRA verður búinn að fara í pósthólf félagsins, flokka kort og raða í hólfin og Sveinn Goði Sveinsson, TF3ID annast kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
ALÞJÓÐLEGAR KEPPNIR 26.-27. SEPTEMBER.
CQ WW DX CONTEST, RTTY.
Keppnin hefst laugardag 26. september kl. 00:00 og lýkur sunnudag 28. september kl. 24:00.
Keppnin fer fram á RTTY á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + raðnúmer.
https://cqwwrtty.com/
YU DX CONTEST.
Keppnin hefst laugardag 26. september kl. 12:00 og lýkur sunnudag 28. september kl. 11:59.
Keppnin fer fram á CW og SSB á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RS(T) + raðnúmer.
https://yudx.yu1srs.org.rs/
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
NÁMSKEIÐ TIL AMTÖRPRÓFS ER BYRJAÐ.
Námskeiðið ÍRA til amatörprófs hófst í Háskólanum í Reykjavík mánudaginn 14. september. Andrés Þórarinsson, TF1AM varaformaður félagsins setti námskeiðið.
Alls voru 32 þátttakendur skráðir. Þar af mættu 13 í kennslustofu, en 9 voru fjarstaddir vegna vinnu eða af öðrum ástæðum. Þá eru 4 með búsetu utan höfuðborgarsvæðisins og munu þeir nota upptökur frá eldri námskeiðum til að ná eðlilegri námsframvindu. Loks eru 4 N-leyfishafar skráðir sem munu mæta þegar líða tekur á námskeiðið til að fullnema sig í efni sem þeir telja sig vanta.
Eftir setningu tók Kristinn Andersen, TF3KX við og hóf kennsluna. Hann var einnig með kennslu í gær (þriðjudag). Kennsla verður síðan samkvæmt tímaplani og mun Njáll H. Hilmarsson, TF3NH annast kennslu í dag, miðvikudag. Námskeiðinu lýkur 27. október n.k.
Bestu óskir um gott gengi og þakkir til allra sem koma að verkefninu.
Stjórn ÍRA.
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 17. SEPTEMBER.
Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fyrir félagsmenn og gesti fimmtudaginn 17. september frá kl. 20:00 til 22:00.
QSL stjóri ÍRA verður búinn að fara í pósthólf félagsins, flokka kort og raða í hólfin og Sveinn Goði Sveinsson, TF3ID annast kaffiveitingar.
Verið velkomin í Skeljanes!
Stjórn ÍRA.
ALÞJÓÐLEGAR KEPPNIR 19.-20. SEPTEMBER.
Keppnin er haldin laugardaginn 19. október kl. 12:00 til sunnudags 20. september kl. 12:00.
Keppnin fer fram á CW á 80, 40, 20, 15 og 10 metrum.
Skilaboð: RST + raðnúmer.https://www.sactest.net/blog/scandinavian-activity-contest-2025-rules/
Markmið keppninnar er að efla virkni radíóamatöra á Norðurlöndunum með því að hvetja til amskipta þeirra á milli og annarra utan utan Norðurlandanna. Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt.
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
VIKA ER TIL STEFNU.
Ágæti félagsmaður!
Næsta tölublað CQ TF, nr. 4/2026 kemur út sunnudaginn 4. október.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið, s.s. frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr. Félagsmönnum er boðið að auglýsa frítt í blaðinu notuð fjarskiptatæki og/eða búnað sem tilheyrir áhugamálinu.
Ath. að skilafrestur efnis er til sunnudags 20. september. Netfang: ira@ira.is
Félagskveðjur og 73,
Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA
ritstjóri CQ TF
.
NÁMSKEIÐIÐ HEFST Á MÁNUDAG.
Námskeið ÍRA til amatörprófs hefst mánudaginn 14. september kl. 18:30, sjá vefslóð:
https://www.ira.is/skipulag-namskeids-ira-til…
Fjöldi skráninga stendur í 31 í dag en miðað er við mest 35 nemendur. Tekið verður á móti skráningum til miðnættis á sunnudagskvöld á þessari vefslóð: https://www.ira.is/wp-content/uploads/2026/06/Namskeid_IRA_2026.pdf
Fyrirspurnir má senda á veffangið www.ira.is
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
ERINDI TIL FÉLAGSMANNA ÍRA.
Ágætu félagsmenn!
Reykjavíkurborg hefur reynst ÍRA vel í gegnum tíðina og hefur Borgin verið okkur innan handar samfleytt í 63 ár um húsnæði fyrir starfsemi félagsins og nú síðast í Skeljanesi í 24 ár.
Eftir skoðun eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir skömmu, telur Borgin ekki forsvaranlegt að leigja húsið í Skeljanesi út lengur og hefur sagt öllum leigjendum upp leigunni, einnig ÍRA.
Stjórn ÍRA hefur verið í sambandi við Reykjavíkurborg, fundað með embættismönnum og sent erindi, m.a. um að ÍRA geti lagfært ágalla sem fram koma í skýrslu Slökkviliðsins, ef það megi vera til að fresta brottflutningi.
Aðalatriðið er þetta: Það er fyrirsjáanlegt að ÍRA missi fljótlega á nýju ári aðstöðuna í Skeljanesi. Við getum verið þakklát Reykjavíkurborg fyrir að hafa stutt okkur svo vel og svo lengi. Það er hins vegar einlæg von okkar, að Borgin geti orðið okkur innan handar um útvegun nýs húsnæðis fyrir starfsemina því án húsnæðis, mun ÍRA eiga erfitt uppdráttar.
Stjórn ÍRA.
NÁMSKEIÐ TIL AMATÖRPRÓFS NÁLGAST.
Námskeið ÍRA til amatörprófs hefst mánudaginn 14. september n.k. Sjá skipulag hér: https://www.ira.is/skipulag-namskeids-ira-til-amatorprofs-haustid-2026/
Enn er hægt að skrá þátttöku á þessari vefslóð:
https://www.ira.is/wp-content/uploads/2026/06/Namskeid_IRA_2026.pdf
Fyrirspurnir má senda á veffangið www.ira.is
N-leyfishafar sem hafa í hyggju að uppfæra til G-leyfis eru sérstaklega hvattir til að nota tækifærið og skrá sig.
Með ósk um gott gengi!
Stjórn ÍRA.
DXCC STAÐA TF KALLMERKJA.
Uppfærð DXCC staða TF kallmerkja miðast við 8. september 2026.
21 TF kallmerki er í dag með virka skráningu, en alls hafa [a.m.k.] 30 íslensk kallmerki sótt um og fengið DXCC viðurkenningar til þessa dags.
Hamingjuóskir til viðkomandi!
Stjórn ÍRA.